Um orlofsdvöl eldri borgara á Löngumýri

Hóparnir eru ýmist 6 eða 7 dagar. Dagskráin er nokkuð fastmótuð en hver dagur hefur samt sem áður sín sérkenni. Öll þátttaka í dagskrá er valfrjáls.

  • Hópur 1 | 25. maí – 30. maí 2026
  • Hópur 2 | 31. maí – 6. júní 2026
  • Hópur 3 | 14. júní – 19. júní 2026
  • Hópur 4 | 21. júní – 26. júní 2026
  • Hópur 5 | 28. júní – 3. júlí 2026
  • Hópur 6 | 5. júlí – 11. júlí 2026

Boðið er upp á gönguferð á hverjum degi, einnig létta stólaleikfimi.

Kvöldvökur, söngur og gleði eru daglegt brauð, svo er oft boðið upp á spil, bingó, púsluspil og aðra skemmtun. Kvölds og morgna er boðið upp á stutta samveru í kapellu.

Einn daginn er farið í menningarferð um héraðið.

Rútan sem ekur okkur er með lyftu!

Verð

Í verðinu er allt innifalið, rútuferðir, gisting og fæði ásamt menningarferðinni. Gestir þurfa sjálfir að sjá um sig í mat á leið til og frá Löngumýri.

Skráningargjald, 10.000 kr, er innheimt með sérstakri kröfu í netbanka. Gjaldið er óafturkræft og dregst frá heildarverði. Ekki er innheimt skráningargjald fyrir að vera á biðlista.

Um svæðið

Langamýri er fræðslusetur þjóðkirkjunnar. Það stendur á flatanum neðan við Varmahlíð í Skagafirði. Þar var áður húsmæðraskóli. Húsnæðið hentar mjög vel fyrir starfsemi eins og orlofsbúðir fyrir eldra fólk enda er nánast allt á sömu hæð. Fáein þrep eru niður í setustofuna og tvö herbergjanna eru á efri hæð en annars er allt á einu og sama gólfinu.

Gist er í eins og tveggja manna herbergjum, eitt þriggja manna herbergi er á staðnum. Salerni eru sameiginleg en mjög mörg og nálægt hverju herbergi

Í rúmgóðum matsalnum er borðað fimm sinnum á dag og í eldhúsinu starfar dásamlegt starfsfólk úr héraðinu.

Innangengt er í kapellu og þar er boðið upp á stundir kvölds og morgna. Gist er í uppbúnum rúmum og handklæði fylgja.

Sundlaug og heitur pottur eru á staðnum.

Skráning

Skráning fyrir orlofsdvöl sumarið 2026 hefst laugardaginn 28. mars 2028 kl. 12:00. Vinsamlega viljið tegund herbergis hér fyrir neðan: