List sem trúarbrögð. Biblíulestrar í Breiðholtskirkju haustið 2026

Í Breiðholtskirkju verður haldin fyrirlestraröð eða biblíulestur á vegum héraðsprests prófastsdæmisins á fimmtudögum klukkan 20 – 22 og hefjast 24. september og verða til 19. nóvember. Þeir eru á vegum héraðsprests, dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar.

Megin efni fyrirlestranna að þessu sinni verður um tónlist, myndlist og trú.

Í fyrstu fyrirlestrunum sem Sigurjón Árni Eyjólfsson heldur verður skoðað hvernig listin, listamenn og aðrir fulltrúar hennar yfirtóku mörg svið innan menningarinnar á 19 og 20 öld sem voru til þess tíma á sviði kirkju og kristni.  Í framhaldi af því mun dr. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur halda fyrirlestra, um trúarstef í nokkrum þekktum bókmenntaverkum. Í fótspor hans mun Haukur Ólafsson sem starfaði um árabil í utanríkisþjónustunni veita yfirlit yfir sögu Síonismann á 20 og 21 öld. Síðan mun Stefán Karlsson guðfræðingur og stjórnmálafræðingur fjalla um efni sem snerta trú og stjórnmál í samtímanum.    Í öllum þessum erindum verður á einn eða annan máta tekið tillit til áhrifa til hins Biblíulega boðskapar á menningu og þróun innan vestrænnar menningar.

Boðið verður upp á kaffi og umræður að loknum fyrirlestrum.

Í stað þátttökugjalds er vonast til að fólk nýti forvitni sína og áhuga