Kyrrðarstundir í allt sumar

Vegna sumarleyfa er starf kirkjunnar með öðrum hætti yfir sumarmánuðina. Hefðbundið starf, fyrir utan guðsþjónustur, fer í sumarfrí með ákveðnum undantekningum. Í Breiðholtskirkju eru kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12 í allt sumar og reyndar alla miðvikudaga allan ársins hring. Einu undantekningarnar eru ef stórhátíðisdagur fellur á miðvikudag, annars má ganga að kyrrðarstundum vísum. Eftir stundina er boðið upp á léttan hádegisverð og gefandi samfélag. Þessa fallegu mynd af Breiðholtskirkju tók Vigdís Pálsdóttir.