Aukahéraðsfundur 31. október 2018

 

Með bréfi þessu er boðað til áður auglýsts aukahéraðsfundar í Reykjavíkurprófasts-dæmi eystra, sem haldinn verður í Breiðholtskirkju, miðvikudaginn 31. október næstkomandi. Fundurinn hefst kl. 17:30 og gert er ráð fyrir að honum ljúki kl. 21.

 

Megin umfjöllunarefni þessa fundar eru:

 

Lokaafgreiðsla fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.

Umræður um mál kirkjuþings 2018.

Svæðasamstarfið og annað samstarf.

Önnur mál.

 

Boðið verður upp á léttan kvöldverð.

 

Á héraðsfundi eiga að mæta:

  1. a) þjónandi prestar í prófastsdæminu
  2. b) tveir sóknarnefndarmenn, formaður og safnaðarfulltrúi, ef hann er til staðar, eða varamenn þeirra
  3. c) djáknar, starfandi í prófastsdæminu
  4. d) kirkjuþingsmenn prófastsdæmisins
  5. e) fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu.

 

Í starfsreglum um héraðsfundi segir svo:

Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt. Vil ég því biðja þig að vekja athygli á fundinum í söfnuði þínum og hvetja fólk til þátttöku. Á héraðsfundi hafa atkvæðisrétt, tveir fulltrúar frá hverri sókn, sbr. b-lið hér að ofan, og starfandi prestar og djáknar.

 

Þess er vænst að þú sjáir þér fært að sækja fundinn.

 

Í von um góða fundarsókn og með kveðjum og blessunaróskum.

 

Virðingarfyllst,

 

 

Gísli Jónasson,

prófastur