Héraðsfundur Dagbók úr orlofi á Löngumýri

Dagbók úr orlofi eldri borgara á Löngumýri í Skagafirði

Sumarið 2017 var farið með fimm hópa á Löngumýri. Það var fullt í alla hópana og margir sem þurftu að sætta sig við að komast ekki með.

Allir hóparnir lögðu upp frá Breiðholtskirkju og var ferðast með Hópferðarbílum Steins Sigurðssonar. Þetta fyrirtæki þjónustar okkur afskaplega vel og það er ákaflega hentugt að við höfðum rútuna aðeins fyrir okkur og getum látið hana stoppa þar sem okkur hentaði og þegar okkur hentaði. Og ekki skemmir fyrir að hann Steini, eigandi fyrirtækisins og okkar einkabílstjóri er með afskaplega ríka þjónustulund.

Dagskrá allra hópanna var með sama sniði og markmið okkar var að engum leiddist og allir fengju eitthvað við sitt hæfi.

Morgunmatur er borinn fram á milli 8:30 og 10:00. Eftir morgunverð efst helgistund og að henni lokinni er boðið uppá létta stóla-morgunleikfimi og eftir það göngutúr um fallegar lendur Löngumýrar. Þá tekur við frjáls tími fram að hádegisverði. Að lokinni hádegis- síestu er samvera á sal þar sem við skemmtum okkur saman við allt mögulegt og ómögulegt. Miðdegiskaffi er drukkið á milli 15:00 og 15:30 og eftir það er samvera í setustofu. Eftir kvöldverð, fréttir og veður er svo kvöldvaka þar sem listamenn úr Skagafirði sjá um að skemmta gestum okkar.

Allir hóparnir fara í eins dags menningarferð með Gunnar staðarhaldara á Löngumýri sem leiðsögumann og allir hóparnir fara í samskonar ferð. Þetta sumarið var ákveðið að fara til Dalvíkur og Akureyrar. Ferðin hófst kl. 10:00 og var ekið beint til Dalvíkur. Eftir að hafa skoðað Dalvíkurkirkju í krók og kring og látið syngja fyrir okkur, var okkur boðið í fiskisúpu í Safnaðarheimili kirkjunnar. Þaðan röltum við á lítinn loppumarkað og grömsuðum þar að vild. Að því loknu var brunað til Akureyrar og þar var öllum sleppt lausum í klukkustund. Flestir nýttu tímann til að spóka sig á göngugötunni eða settust niður á kaffihúsi. Þegar allir höfðu skilað sér til baka í rútuna var ekið að ísbúð Akureyrar og öllum hópnum boðið upp á ís. Þegar komið var fram á miðjan dag var svo ekið rakleitt í Skagafjörðinn fagra.

Allir hóparnir nutu dvalarinnar á Löngumýri og flestir töluðu um að koma aftur að ári. Betri meðmæli er ekki hægt að fá.

Umsjón með orlofsbúðunum sumarið 2017 höfðu þær Anna Hulda Júlíusdóttir og Þórey Dögg Jónsdóttir. Þetta sumarið voru engir djáknanemar í þjálfun hjá Þóreyju Dögg.