Aukahéraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra verður haldinn í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 16. október 2017.
Fundurinn hefst kl. 17:30 og gert er ráð fyrir að honum ljúki kl. 21.
Á héraðsfundi eiga að mæta:
- þjónandi prestar í prófastsdæminu
 - tveir sóknarnefndarmenn, formaður og safnaðarfulltrúi, ef hann er til staðar, eða varamenn þeirra
 - djáknar, starfandi í prófastsdæminu
 - kirkjuþingsmenn prófastsdæmisins
 - fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu.
 
Í starfsreglum um héraðsfundi segir svo:
Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt.