Dagbók úr orlofi eldri borgara á Löngumýri í Skagafirði

Sumarið 2016 var farið með fimm hópa á Löngumýri. Það var fullt í alla hópana og margir sem þurftu að sætta sig við að komast ekki með.

Allir hóparnir lögðu upp frá Breiðholtskirkju og var ferðast með Hópferðarbílum Steins Sigurðssonar. Þetta fyrirtæki þjónustar okkur afskaplega vel og það er ákaflega hentugt að við höfðum rútuna aðeins fyrir okkur og getum látið hana stoppa þar sem okkur hentaði og þegar okkur hentaði. Og ekki skemmir fyrir að hann Steini, eigandi fyrirtækisins og okkar einkabílstjóri er með afskaplega ríka þjónustulund.

Dagskrá allra hópanna var með sama sniði og markmið okkar var að engum leiddist og allir fengju eitthvað við sitt hæfi.

Morgunmatur er borinn fram á milli 8:30 og 10:00. Eftir morgunverð efst helgistund og að henni lokinni er boðið uppá létta stóla-morgunleikfimi og eftir það göngutúr um fallegar lendur Löngumýrar. Þá tekur við frjáls tími fram að hádegisverði. Að lokinni hádegis- síestu er samvera á sal þar sem við skemmtum okkur saman við allt mögulegt og ómögulegt. Miðdegiskaffi er drukkið á milli 15:00 og 15:30 og eftir það er samvera í setustofu. Eftir kvöldverð, fréttir og veður er svo kvöldvaka þar sem listamenn úr Skagafirði sjá um að skemmta gestum okkar.

Allir hóparnir fara í eins dags menningarferð með Gunnar staðarhaldara á Löngumýri sem leiðsögumann og allir hóparnir fara í samskonar ferð. Þetta sumarið var ákveðið að fara til Akureyrar. Ferðin hófst kl. 10:00 og var ekið beint til Akureyrar. Okkar fyrsta stopp var í menningarhúsinu Hofi. Þar var tekið á móti okkur og við fengum leiðsögn um húsið. Eftir að hafa kynnst Hofi var ekið sem leið lá að Vaðlaheiðargöngum og þau skoðuð í gegnum glugga rútunnar. Eftir þennan rúnt skelltum við okkur öll í hádegisverð á Bautanum. Að honum loknum flæddi fólkið frjálst um göngugötuna, kíkti í Amaró eða á kaffihús. Eftir það áttum við okkar nestistíma í Lystigarðinum og enduðum svo Akureyrardvölina með því að bjóða öllum upp á Brynjuís, að sjálfsögðu!

Allir hóparnir nutu dvalarinnar á Löngumýri og flestir töluðu um að koma aftur að ári. Betri meðmæli er ekki hægt að fá.

Umsjón með orlofsbúðunum sumarið 2016 höfðu þær Anna Hulda Júlíusdóttir, Bergþóra Ragnarsdóttir og Þórey Dögg Jónsdóttir ásamt djáknanemum. Einnig voru þær Valgerður Gísladóttir og Stefanía Baldursdóttir sjálfboðaliðar í síðasta hópnum.ð

ð 2016 var farið með fimm hópa á Löngumýri. Það var fullt í alla hópana og margir sem þurftu að sætta sig við að komast ekki með.

Allir hóparnir lögðu upp frá Breiðholtskirkju og var ferðast með Hópferðarbílum Steins Sigurðssonar. Þetta fyrirtæki þjónustar okkur afskaplega vel og það er ákaflega hentugt að við höfðum rútuna aðeins fyrir okkur og getum látið hana stoppa þar sem okkur hentaði og þegar okkur hentaði. Og ekki skemmir fyrir að hann Steini, eigandi fyrirtækisins og okkar einkabílstjóri er með afskaplega ríka þjónustulund.

Dagskrá allra hópanna var með sama sniði og markmið okkar var að engum leiddist og allir fengju eitthvað við sitt hæfi.

Morgunmatur er borinn fram á milli 8:30 og 10:00. Eftir morgunverð efst helgistund og að henni lokinni er boðið uppá létta stóla-morgunleikfimi og eftir það göngutúr um fallegar lendur Löngumýrar. Þá tekur við frjáls tími fram að hádegisverði. Að lokinni hádegis- síestu er samvera á sal þar sem við skemmtum okkur saman við allt mögulegt og ómögulegt. Miðdegiskaffi er drukkið á milli 15:00 og 15:30 og eftir það er samvera í setustofu. Eftir kvöldverð, fréttir og veður er svo kvöldvaka þar sem listamenn úr Skagafirði sjá um að skemmta gestum okkar.

Allir hóparnir fara í eins dags menningarferð með Gunnar staðarhaldara á Löngumýri sem leiðsögumann og allir hóparnir fara í samskonar ferð. Þetta sumarið var ákveðið að fara til Akureyrar. Ferðin hófst kl. 10:00 og var ekið beint til Akureyrar. Okkar fyrsta stopp var í menningarhúsinu Hofi. Þar var tekið á móti okkur og við fengum leiðsögn um húsið. Eftir að hafa kynnst Hofi var ekið sem leið lá að Vaðlaheiðargöngum og þau skoðuð í gegnum glugga rútunnar. Eftir þennan rúnt skelltum við okkur öll í hádegisverð á Bautanum. Að honum loknum flæddi fólkið frjálst um göngugötuna, kíkti í Amaró eða á kaffihús. Eftir það áttum við okkar nestistíma í Lystigarðinum og enduðum svo Akureyrardvölina með því að bjóða öllum upp á Brynjuís, að sjálfsögðu!

Allir hóparnir nutu dvalarinnar á Löngumýri og flestir töluðu um að koma aftur að ári. Betri meðmæli er ekki hægt að fá.

Umsjón með orlofsbúðunum sumarið 2016 höfðu þær Anna Hulda Júlíusdóttir, Bergþóra Ragnarsdóttir og Þórey Dögg Jónsdóttir ásamt djáknanemum. Einnig voru þær Valgerður Gísladóttir og Stefanía Baldursdóttir sjálfboðaliðar í síðasta hópnum.