Messuþjónahátíð

Til messuþjóna í Reykjavíkurprófastsdæmum

Verið öll hjartanlega velkomin á messuþjónahátíð í Breiðholtskirkju í Mjódd þriðjudaginn 30. maí kl. 20 – 22.

Sr. Þórhallur Heimisson byrjar samveruna með helgistund og fjallar síðan um það hvernig það var fyrir hann sem prest að koma í fyrsta sinn til starfa í söfnuði með sterkri messuþjónahefð.

Dr. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, mun fjalla um guðfræði og tilgang guðsþjónustuar.

Einnig gefst fulltrúum kirknanna færi á að segja frá starfinu í sinni kirkju.

Þá syngjum við öll saman oggóðar veitingar verða fram bornar í boði prófastsdæmanna.

Við viljum hvetja ykkur til að koma og hitta messuþjóna úr öðrum kirkjum og eiga saman uppbyggilega og gleðilega kvöldstund.

Við prófastarnir hlökkum til að sjá ykkur og viljum með þessari samveru láta í ljós örlítinn þakklætisvott fyrir trúfasta messuþjónustu ykkar á liðnum vetri.

Gísli Jónasson
Helga Soffía Konráðsdóttir