Að ná áttum og sáttum

Í Grafarvogskirkju 11. október til 22. nóvember.
Boðið verður upp á námskeiðið ,,Að ná áttum og sáttum” í Grafarvogskirkju nú í haust. Námskeiðið er sjálfstyrkingarnámskeið fyrir fráskilið fólk og hefst þann 11. október nk. með fyrirlestri kl. 20. Næstu 6 þriðjudagskvöld er síðan boðið upp á sjálfstyrkingarhópa undir handleiðslu prests. Námskeiðinu lýkur 22. nóvember og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Umsjón með námskeiðinu hefur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og nánari upplýsingar má fá í Grafarvogskirkju í síma 587-9070 eða hjá srarna@grafarvogskirkja.is