Siðbótaárið – Námskeið haust 2016

Siðbótaárið – Námskeið

haust 2016

 

Í tilefni 500 ára afmælis siðbótarinnar árið 2017 verður Guðfræði Marteins Lúthers í fyrirrúmi í vetur. Rit Lúthers: Ánauð viljans er eitt umdeildasta rit guðfræðisögunnar. Íslensk þýðing ritsins verður lesin og fjallað um vægi þess ísögu og samtíð. Í því er m.a. umfjöllun um þjáningu og endurlausn, fyrirhugun og náð.

Námskeiðið er hluti af Biblíulestrarröð á vegum Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og leikmannaskóla kirkjunnar.

Kennari á námskeiðinu er einn afkastamesti fræðimaður íslenskrar guðfræði  og helsti Lúthersfræðingur Íslands. Dr. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.  Sigurjón var gestakennari við Guðfræðideildina í Kiel þarsíðasta sumarmisseri og er því hér gott tækifæri til að kynnast því sem hæst ber í guðfræðiumræðu í dag.

 

Námskeiðið hefst 22. september kl. 20 í Breiðholtskirkju og er á fimmtudagskvöldum til 24 Nóvember.

 

 

Skráning er á netfangið skraning(hjá)kirkjan.is eða á skriftstofu Reykjavíkurprófastsdæmis eystra í síma: 567-4810