Konur eru konum bestar

                            

  Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur 

 

Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið í Árbæjarkirkju miðvikudagana 20. og 27. apríl frá kl. 19-22

 

Námskeiðið miðar að því að byggja upp sjálfsmynd kvenna og skapa þeim vettvang til að kynnast sjálfum sér betur í góðu samfélagi við aðrar konur. Fjallað verður um mikilvægi þess að styðja hver við aðra og standa með sjálfri sér. Ýmsum spurningum er velt upp og sögur Biblíunnar eru notaðar til að varpa ljósi á viðfangsefnið.

 

Námskeið þetta hefur notið fádæma vinsælda innan kirkjunnar síðustu 25 árin. Það hefur verið haldið víðsvegar um landið og margar konur lýst ánægju sinni með það.

 

Námskeiðið er opið öllum konum 18 ára og eldri og kostar 1500 krónur.

 

Leiðbeinandi er sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir

 

 

Skráning á námskeiðið er í gegnum tölvupóst á netfangið: petrina@arbaejarkirkja.is eða í gegnum síma Árbæjarkirkju: 587-2405