Námsskeið um messuna

Fyrir og eftir prédikun námskeið um messuna

 

  • Hver er uppbygging messunnar?
  • Af hverju er dýrðarsöngur á eftir miskunnarbæninni

og trúarjátning eftir guðspjallið?

  • Af hverju er talað um almenna kirkjubæn

og hver er merking altarisgöngunnar?

  • Af hverju endar messan á blessun?

 

Á námskeiðinu verður rýnt í messuliðina, tilgang þeirra og stöðu í helgihaldinu. Skoðað verður hvernig uppbyggingu messunnar er háttað, trúfræði hennar og hvernig auka má þátttöku safnaðarins.

 

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru

  1. Sigurjón Árni Eyjólfsson og sr. Bryndís Malla Elídóttir.

 

Námskeiðið verður haldið í Seljakirkju

mánudagana 29. febrúar og 7. mars kl. 19:30-21.

Skráning er í síma 567 0110 eða á bryndis.malla.elidottir@kirkjan.is

þátttaka er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

 

„Ég var glaður, er menn sögðu við mig:

Göngum í hús Drottins.“ Sálm. 122:1