Emmaus námskeið í Seljakirkju

Nærandi námskeið um lífið og trúna frá 5. til 26. október

Mánudaginn 5. október næstkomandi hefst svokallaða Emmaus-námskeið
í Seljakirkju.

Emmaus námskeiðið er fyrir öll þau sem hafa áhuga á kristindómnum og/eða vilja dýpka skilning sinn á kristinni trú. Á námskeiðinu er fjallað um ýmsa grundvallarþætti kristinnar trúar og leitast við að ræða af opnum huga það sem hún boðar. Lögð er áhersla á umræður og vangaveltur þátttakenda og íhugað á hvaða hátt trúin tengist okkar daglega lífi.
Námskeiðið verður á mánudagskvöldum frá kl. 19:30 til 21:00. Boðið er upp á te, kaffi og meðlæti. Kvöldinu lýkur með bæn og íhugun.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er sr. Bryndís Malla Elídóttir

Af hverju Emmaus?

Nafnið á námskeiðinu á rætur sínar að rekja til þorpsins Emmaus sem sagt er frá í Lúkasarguðspjalli. Lærisveinar Jesú voru á ferð til Emmaus eftir páskana og ræddu sín á milli það sem gerst hafði. Þeir voru hugsandi eftir nýliðna atburði og höfðu um margt að ræða. Jesús slóst í för með þeim á göngunni en þeir áttuðu sig ekki á því í fyrstu hver hann væri.
Námskeiðið er í 4 skipti á mánudagskvöldum frá kl. 19:30 -21:00 og er þátttakendum að kostnaðalausu.

Skráning á námskeiðið fer fram í Seljakirkju í síma 567 0110 eða með því að senda póst á netfangið: seljakirkja@kirkjan.is.