Hjálp án skilyrða?

Fyrsta Tómasarmessan í Breiðholtskirkju, tjaldkirkjunni í Mjódd, á þessu hausti verður sunnudagskvöldið 27. september, kl. 20.

Tómasarmessan hefur unnið sér fastan sess í kirkjulífi borgarinnar síðustu 18 árin, en slík messa hefur verið haldin í Breiðholtskirkju síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, allt frá haustinu 1997.

Framkvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholtskirkja, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, Kristilega skólahreyfingin, Samband íslenskra kristniboðsfélaga, Félag guðfræðinema og hópur presta og djákna.

Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tónlist, mikil áhersla er lögð á fyrirbænarþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna.

Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbúningi og framkvæmd Tómasarmessunnar, bæði leikmenn, djáknar og prestar.

Þema messunnar n.k. sunnudag verður: “Hjálp án skilyrða?”

Sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og Þorvaldur Halldórsson leiðir tónlistina ásamt sönghópi.

Sr. Gísli Jónasson.