Eldriborgararáð, haustguðsþjónusta

Haustguðsþjónusta Eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma verður haldin í Seljakirkju miðvikudaginn 23. september kl. 14:00.

Séra Bryndís Malla Elídóttir og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni þjóna fyrir altari.

Lögreglukórinn syngur undir stjórn Kára Allanssonar organista.

Eftir guðsþjónustuna býður Seljasöfnuður upp á veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar.

Allir eru innilega velkomnir.

Guðsþjónustan er samstarfsverkefni Eldriborgararráðs og Seljakirkju