Dómkór Southwark í Lundúnum

SOUTHWARK CATHEDRAL CHOIR

 

Kór dómkirkjunnar í Soutwark í Lundúnum (einum þriggja dómkirkna þar) mun halda tónleika fimmtudaginn 28.maí n.k. klukkan 20:00-21:00 í safnaðarheimili, Kóparvogskirkju “Borgum” og í Skálholtsdómkirkju laugardaginn 30. maí klukkan 16:00.  Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

 

Kórinn hefur verið skipaður drengja- og karlaröddum í mörgár.  Nemendur úr ríkis- og einkaskólum geta sótt nám í kórsöng og sungið í kórnum.  Árið 2000 var stofnaður stúlknakór við kirkjuna,markmið kórsins eins ogdrengjakórsins að styðja og styrkja söng í dómkirkjunni og að bjóða stúlkum og drengjum jöfn tækifæri á að þroskast í tónlist, andlega og félagslega.  Kórarnir syngja reglulega við guðsþjónustur og messur í kirkjunni.

 

Stúlkna- og drengjakórinn tóku árið 2002 þátt í flutningi Mattheusar Passíunar eftir J.S. Bach undir stjórn Trevor Pinnock.  Nýlega sungu kórarnir í Requiem eftir Peter Sculthorp og hlutu lofsamlega dóma meðal annars: í “The Times”.Í desember síðastliðinn tóku 12 stúlkur og 12 drengir í kórnum þátt í aðventutónleikum tónskáldsins John Rutters í Royal Albert Hall í Lundúnum.  Sungu þau verkeftir Britten, Rege og Rutter ásamt hinum þekkta Bachkór.

 

Kórarnir í Southwark hafa meðal annars: farið í tónleikaferðir til Bandaríkjanna, Noregs, Frakklands, Swiss, Austurríkis og Hollands.  Peter Wright stjórnandi kórsins segi rþað sérstakt tilhlökkunarefni kórfélaga að koma í fyrsta skipti í tónleikaferð til Íslands.

Fyrir nokkrum árum síðan var vígður í kirkjunni steindur gluggi eftir Leif Breiðfjörð. Vígsla gluggans var hluti af sextíu ára valdaafmæli Elísabetar II Bretadrottningar.

Nokkrir íslenskir kórar hafa sungið í Southwark, þar á meðal: Mótettukór Hallgrímskirkju, Karlakór Reykjavíkur og Kammerkór Suðurlands.