Héraðsfundur haldinn í Digraneskirkju 17. maí samþykkir ályktun

Ályktun

 

Héraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra, haldinn í Digraneskirkju  19. maí skorar á biskup Íslands að auglýsa án tafar öll prestsembætti sem losna á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt skorar fundurinn á biskup Íslands, vígslubiskupa, kirkjuráð og kirkjuþing að taka höndum saman og jafna þjónustubyrði presta og jafna rétt þjóðkirkjufólks til þjónustu presta m.a. með því að fjölga prestum á höfuðborgarsvæðinu.