Auka héraðsfundur 15. október,

Megin umfjöllunarefni þessa fundar eru:

 

Lokaafgreiðsla fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.

Umræður um mál kirkjuþings 2014.

Sóknargjaldamálin.

Svæðasamstarfið.

Önnur mál.

 

Boðið verður upp á léttan kvöldverð.

 

Á héraðsfundi eiga að mæta:

a)         þjónandi prestar í prófastsdæminu

b)         tveir sóknarnefndarmenn, formaður og safnaðarfulltrúi, ef hann er til staðar, eða varamenn þeirra

c)         djáknar, starfandi í prófastsdæminu

d)        kirkjuþingsmenn prófastsdæmisins

e)         fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu.

 

Í starfsreglum um héraðsfundi segir svo:

Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt. Vil ég því biðja þig að vekja athygli á fundinum í söfnuði þínum og hvetja fólk til þátttöku. Á héraðsfundi hafa atkvæðisrétt, tveir fulltrúar frá hverri sókn, sbr. b-lið hér að ofan, og starfandi prestar og djáknar.

Fundurinn hefst kl. 18:00 og gert er ráð fyrir að honum ljúki kl. 21.