Að skoða hið augljósa? Fyrirlestrar um guðfræði helgihaldsins.

Reykjavíkurprófastsdæmi eystra býður til fræðslufyrirlestrar um inntak og merkingu helgihalds þjóðkirkjunnar. Farið verður í nokkrar lykilspurningar, eins og af hverju signum við okkur, hvernig byrjaði sú hefð? Hvers vegna er upphafsbæn og blessun?  Og hvað merkir það eiginlega það sem er sagt í messuliðunum og hvaða tilgangi þjóna þeir? Hvaða máli skiptir vígslan?  Hvernig tengist messan ritningunni? Hvernig tengjast sálmarnir og predikunin ritningunni?

Fyrirlestrarnir verða á fimmtudagskvöldum milli kl. 20 og 22. Sá fyrsti verður þann 18. september næstkomandi og sá síðasti 20.n nóvember. Það er dr. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur sem flytur fyrirlestrana. Hér er á ferðinni spennandi námskeið þar sem leitast er við að svara spurningum þeirra sem vilja vita meira.

Um kennarann

Dr. dr. Sigurjón Árni er einn fremsti fræðimaður íslendinga í guðfræði.  Hann starfar sem héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og leiðir þar predikunnarsamfélag presta.  Hann hefur kennt guðfræði bæði við Háskóla Íslands og einnig við Háskólann í Kiel í Þýskalandi.  Sigurjón hefur einnig gefið út fjölda bóka um guðfræði og er án vafa afkastamesti guðfræðihöfundur landsins.

Á námskeiðinu verður boðið upp á fyrirlestur og síðan verða umræður um efnið yfir kaffibolla þar sem þátttakendur eru hvattir til að leggja til umræðunnar.