Málþing Samráðsvettvangs trúfélaga ,,Trú, skoðunarfrelsi og mannréttindi“

Málþing Samráðsvettvangs trúfélaga
,,Trú, skoðunarfrelsi og mannréttindi“
Tímasetning: 27. febrúar kl. 18:00 – 20:00.
Staður: Safnaðarheimili Háteigskirkju.
Fyrirlesarar:
Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður.

Jón Ólafsson, heimspekingur og prófessor við Háskólann á Bifröst.

Arnfríður Guðmundsdóttir, guðfræðingur og prófessor við Guðfræði-og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.

Fundarstjóri: 
Margrét Steinardóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.

 

Undanfarin ár hefur töluverð umræða verið um árekstra milli trúarhefða og mannréttinda. Ágreiningsefnin varða m.a. kvenréttindi, málefni samkynhneigðra, vígsluathafnir fyrir börn, menntun og tjáningarfrelsi. Markmiðið með málþinginu er að draga fram helstu árekstrana og vega þá og meta út frá lögfræðilegum, heimspekilegum og trúarbragðafræðilegum sjónarhóli.

 

Þetta er meðal þess sem verður spurt: Hversu langt nær trúfrelsi? Hvernig er unnt að viðhalda jafnvægi á milli trúariðkunar og mannréttinda? Getur samfélagið samþykkt starfsemi trúfélaga eða trúarbragða sem hafa að geyma kenningar eða stefnur sem talist geta á skjön við almenn mannréttindi? Hvaða úrræði eru fyrir hendi þegar árekstrar eiga sér stað? Hversu langt nær tjáningarfrelsið? Hvað getur flokkast undir hatursorðræðu? Hvernig ber að bregðast við haturshreyfingum?
Á málþinginu munu nokkrir af færustu sérfræðingum landsins á þessu sviði ræða málið frá ýmsum hliðum.

 

Málþingið er haldið í samvinnu við Trúarbragðafræðistofu Hugvísindasviðs Háskóla Íslands.

Enginn aðgangseyrir. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
*Nánari upplýsingar: Óttar Óttósson (oto2@hi.is) (Ásatrúarfélag)
Bjarni Randver Sigurvinsson (bjarnirs@gmail.com)
Toshiki Toma (toshiki@toma.is)

 

Samráðsvettvangur trúfélaga á Íslandi

•                Ásatrúarfélagið

•                Baháísamfélagið

•                Búddistafélag Íslands

•                Félag Múslima á Íslandi

•                FFWU – Heimsfriðarsamband fjölskyldna

•                Fríkirkjan í Reykjavík

•                Fríkirkjan Vegurinn

•                Kaþólska kirkjan

•                Kirkja sjöunda dags aðventista á Íslandi

•                Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu

•                Krossinn

•                Menningarsetur múslíma á Íslandi

•                Óhaði Safnaðarinn

•                Soka Gakkai International á íslandi

•                Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins í Reykjavík

•                Þjóðkirkjan

Eftirtaldir samstarfsaðilar hafa rétt á áheyrnarfulltrúa með tillögurétt:

Trúarbragðafræðistofu Hugvísindasviðs