[Reykjavíkurprófastsdæmi eystra] Héraðsnefndir Reykjavíkurprófastsdæma eystra og vestra auglýsa laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra Ellimálaráðs prófastsdæmanna.

Markmið Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæma er að vinna að því að efla og styðja kristilega öldrunarþjónustu í söfnuðum prófastsdæmanna. Framkvæmdastjóri sér um fjárhagsáætlunargerð, dagskrárgerð og fræðslu, hefur samráð við sóknarnefndir og er ráðgefandi við ráðningu starfsfólks í öldrunarþjónustu.

Starf framkvæmdastjóra fellur undir stjórnsýslu prófasta. Framkvæmdastjóri skipuleggur starf Ellimálaráðs í samstarfi við stjórn þess og á náin samskipti við aðra aðila, sem starfa að öldrunarþjónustu. Sömuleiðis sér hann um framkvæmd orlofsdvalar eldri borgara.

Leitað er eftir einstaklingi með góða skipulagshæfileika og hæfileika til mannlegra samskipta. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt og hafa reynslu af því að vinna með sjálfboðaliðum. Þá er reynsla af kirkjulegu starfi nauðsynleg og reynsla af því að starfa með öldruðum og góð þekking á málefnum þeirra áskilin. Leitað er eftir djákna, einstaklingi með djáknamenntun eða aðra hliðstæða menntun.
Launakjör verða skv. samkomulagi, en taka mið af kjarasamningi VR

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Reykjavíkurprófastsdæmis eystra í Breiðholtskirkju fyrir 19. júní n.k.

Nánari upplýsingar um starfið veita prófastar Reykjavíkurprófastsdæmanna og núverandi framkvæmdastjóri Valgerður Gísladóttir.