Námskeið Leikmannaskólans

Minnum á að skráning stendur yfir á námskeiðið Lifandi steinar í Hallgrímskirkju sem hefst þann 5.febrúar n.k. kl. 20.00 Skráning fer fram með því að senda pósti á kristin.arnardottir@kirkjan.is eða hringja í síma 528 4000 _____________________________________
Námskeið um helgihald og hversdagslíf

Þriðjudaginn 5.febrúar 2013 hefst í kórkjallara Hallgrímskirkju námskeiðið Lifandi steinar. Námskeiðinu er ætlað að veita innsýn í messuna og skapa samfélag við annað fólk í safnaðarstarfi kirkjunnar með það fyrir augum að þátttakendur geti tekið virkari þátt í safnaðarstarfi og aukið trúarþroska sinn. Að þessu er stefnt með fræðslu, hópumræðum, kyrrðarstundum, íhugun og skriflegum heimaverkefnum.

Námskeiðið hefst 5.febrúar og kennt verður í kórkjallara Hallgrímskirkju á þriðjudögum kl. 20.00-22.00, vikulega til 12.mars

Langur laugardagur sem er hluti af námskeiðinu verður 23.febrúar kl. 9-14.

Umsjón með námskeiðinu hafa Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari og messuþjónn og Irma Sjöfn Óskarsdóttir héraðsprestur