Aukahéraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra

Aukahéraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra verður haldinn í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 8. nóvember kl. 17:30.

Á héraðsfund eiga að mæta:

a) þjónandi prestar í prófastsdæminu

b) tveir sóknarnefndarmenn, þar af annar formaður og hinn safnaðarfulltrúi, ef hann er til staðar.

c) djáknar, starfandi í prófastsdæminu

d) kirkjuþingsmenn

e) fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu

Í starfsreglum um héraðsfundi segir svo: Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt. Á héraðsfundi hafa atkvæðisrétt, 2 fulltrúar frá hverri sókn og starfandi prestar og djáknar.