Aukahéraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra

Aukahéraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra verður haldinn í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 8. nóvember kl. 17:30.

Á héraðsfund eiga að mæta:

 

a)         þjónandi prestar í prófastsdæminu

b)         tveir sóknarnefndarmenn, þar af annar formaður og hinn   safnaðarfulltrúi, ef hann er til staðar.

c)         djáknar, starfandi í prófastsdæminu

d)         kirkjuþingsmenn

e)         fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu

 

Í starfsreglum um héraðsfundi segir svo:  Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt.   Á héraðsfundi hafa atkvæðisrétt, 2 fulltrúar frá hverri sókn og starfandi prestar og djáknar.