Skýrsla Eldriborgararáðs

AÐALFUNDUR  15. APRÍL 2019.

SKÝRSLA  STJÓRNAR  OG  FRAMKVÆMDASTJÓRA.

FULLTRÚAFUNDIR OG STJÓRNARFUNDIR

Á þessu starfsári hélt ER 3 fulltrúafundi, Eitt námskeið, 7 stjórnarfundi og 3 guðsþjónustur og eitt opið hús.

Fulltrúafundir, ráðstefnur og samkomur á starfsárinu voru eftirfarandi:

  1. 16. september 2018. Haustguðsþjónusta ER haldin í Digraneskirkju.
  2. 1. og 8. október 2018. Námskeið í framsögn og tjáningu. Þórey Sigþórsdóttir leikkona leiðbeindi.
  3. 26. október 2018. Fulltrúafundur: Grafarvogskirkja. Séra Arna Ýrr fræddi okkur um drauma og áhrif þeirra á líf okkar
  4. 12. nóvember 2018. Fulltrúafundur: Fella- og Hólakirkja, Elísabet Berta frá fjölskylduþjónustu kirkjunnar fræddi okkur um mikilvægi stuðnings við starfsfólk og sjálfboðaliða í starfi með eldri borgurum í kirkjunni.
  5. 23. nóvember 2018. Litlu jól ER haldin í Grensáskirkju.
  6. 13. janúar 2019. Áramótaguðsþjónusta ER haldin í Langholtskirkju.
  7. 22. febrúar 2019. Fulltrúafundur: Séra Hjalti Jón Sverrisson skemmti okkur með tali, tónum og söng.
  8. 14. mars 2019. Fjáröflunartónleikarnir GAMLINGINN haldnir í Breiðholtskirkju.
  9. 7. apríl 2019. Föstuguðsþjónusta ER haldin í Hallgrímskirkju.
  10. 15. apríl 2019. Aðalfundur Eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma.
  11. 2. Maí 2019. Uppskeruhátíð ER. Ferðalag á Eyrarbakka.

UPPSKERUHÁTÍÐ ELDRIBORGARARÁÐS 3. MAI 2018

Uppskeruhátíð Eldirborgararáðs var haldin þann 3. maí 2018 í Breiðholtskirkju að vanda. Gestir okkar að þessu sinni var kórinn Söngfuglar, sem er kór félagsstarfs aldraðra í Reykjavík. Þau sungu fyrir okkur nokkur lög, og luku sínu prógrammi í fjöldasöng. Eftir það var sest að borðum og framreiddur var veislumatur að hætti ER. Kvöldi leið fram með leikjum og ljúflegheitum. Allir fóru sáttir heim til sín um 21:00.

JÓLAFUNDUR STARFSFÓLKS OG SJÁLFBOÐALIÐA.

“litlu jólin“ voru haldin fimmtudaginn 23. nóvember kl. 18:00 – 20:30 í Grensáskirkju.

Jólagleði starfsfólks í kirkjustarfi eldri borgara var að venju haldin í Grensáskirkju og var hún vel sótt að vanda. Í upphafi var stutt helgistund sem séra Magnús Björn Björnsson sóknarprestur í Breiðholtskirkju annaðist. Eftir helgistundina var boðið upp á fjölbreyttan jólakvöldverð Skemmtikraftar jólagleðinnar í ár voru þau Íris Rós Andrésdóttir og Árni Beinteinsson sem skemmtu okkur með tali, tónum og söng. Ýmislegt var til gamans gert, lesnar jólasögur og mikið sungið.

Einnig var jólapökkum útdeilt sem þátttakendur höfðu komið með. Þetta er skemmtilegur siður sem gleður alltaf.

GUÐSÞJÓNUSTUR

Á liðnum árum hefur skapast sú hefð að ER. og kirkjurnar í prófastsdæmunum standi fyrir nokkrum guðsþjónustum í kirkjustarfi eldri borgara.               

Haustguðsþjónusta var haldin í Digraneskirkju 16.september 2018 kl. 11:00.

Haustguðsþjónustan markar upphaf vetrarstarfs í kirkjustarfi eldri borgara og var hún vel sótt eins og ávallt. Séra Bára Friðriksdóttir og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni fluttu samtalspredikun. Söngvinir, kór eldri borgara í Kópavogi leiddi sönginn undir stjórn organistans Kristjáns Hrannars Pálssonar.

Eftir guðsþjónustuna bauð bauð Digranessöfnuður upp á veitingar í safnaðarheimilinu. Góð mæting var og  fólkið mjög ánægt að hittast aftur að loknu sumarleyfi og þakklátt fyrir allt sem boðið var upp á.

Áramótaguðsþjónusta ER var haldin í langholtskirkju 13. janúar kl. 11:00

Allir í Langholtskirkju tóku okkur í Eldriborgararáði fagnandi þennan dag og haft var sérstaklega á orði hversu gaman það væri að fá eldri borgarara úr Reykjavíkurprófastsdæmi eystra í Heimsókn. Séra Guðbjörg Jóhannesdóttir predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt Þóreyju Dögg Jónsdóttur djákna. Söngfélagið Góðir grannar leiddi sönginn í guðsþjónustunni undir dyggri stjórn kórstjórans Egils Gunnarssonar. Organisti var Kristján Hrannar Pálsson. Eftir guðsþjónustuna buðu Eldriborgararáð og Langholtssöfuður upp á leittar veitingar.

Föstuguðþjónusta ER haldin í Hallgrímskirkju 7. apríl kl. 11:00

Föstuguðsþjónustan ER var að þessu sinni haldin í Hallgrímskirkju. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr. Sigurður Árni Þórðarsson fluttu samtalspredikun og þjónuðu fyrir altari ásamt framkvæmdastjóra ER og Margréti Steinunni Guðjónsdóttur djáknakandídats. Eftir guðsþjónustuna bauð Hallgrímssöfnuður og ER uppá léttar veitingar.

Stjórn ER færir þeim sem tóku á móti okkur í þessum kirkjum og aðstoðuðu á margvíslegan hátt bestu þakkir og óskar þeim öllum blessunar.

Uppskeruhátíð ER verður haldin fimmtudaginn 2. maí n.k. Að þessu sinni verður boðið upp á þá nýbreytni að fara í ferðalag með hópinn. Við ætlum að heimsækja þau heiðurshjón Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur og Valgeir Guðjónsson á Eyrarbakka. Þau ætla að skemmta okkur með frásögnum og söng.

SUMARORLOF Á LÖNGUMÝRI.

Eldriborgararáð og Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar hafa í mörg undanfarin ár haft samvinnu um orlof eldri borgara á Löngumýri og hefur það gefist vel. Sl. sumar dvöldu þar sex 30 manna hópar, eða alls 180 manns.  Á Löngumýri er mjög góð aðstaða fyrir fólk með minnkaða hreyfigetu og er því mjög heppilegur staður fyrir eldra fólk. Aðsókn var mikil og margir fengu ekki pláss. Allir dvalargestir fóru heim hressir og kátir eftir að hafa dvalið í sveitinni í nokkra daga. Með þessari ársskýrslu fylgir sérstök skýrsla um orlofið á Löngumýri og því er ekki gerð frekari grein fyrir orlofinu hér. Sjá fylgiskjal.

Fjáröflun vegna orlofs.

 Okkur sem að orlofinu stöndum finnst nauðsynlegt að allir geti tekið þátt, þrátt fyrir misjöfn fjárráð og því brugðum við á það ráð í sjöunda skiptið, að halda tónleika til styrktar þessu mikilvæga málefni. Tónleikarnir voru haldnir í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 14. Mars. Þetta árið kölluðum við tónleikana SKAGFIRSKUR GAMLINGI, vegna þess að flestir listamennirnir eiga rætur eða miklar tengingar í Skagafirðinum fagra. Eins og ávallt gáfu listamennirnir vinnu sína en flestir fengu greiddan ferðakostnað. Öllu þessu frábæra listafólki ásamt öllum í Breiðholtskirkju færum við okkar bestu þakkir og biðjum þeim blessunar um alla framtíð. Hreinn hagnaður tónleikanna var tæplega 500.000.-

Sigurður Moritsson í Grænum markaði gaf okkur alla blómvendina sem tónilstarmennirnir fengu afhenta. Við þökkum þeim kærlega þennan frábæra stuðning.

Reykjavíkurprófastsdæmin halda einnig áfram sínum dygga stuðningi við orlofið, Kjalarnesprófastsdæmi veitti okkur styrk í fyrsta skipti í fyrra upp á 130.000.-  vonandi halda þau áfram að leggja okkur lið á komandi árum. Kunnum við öllum þessum fólki okkar bestu þakkir.

Stjórn ER

Stjórn E.R veturinn 2018-2019 var þannig skipuð:

  • Valgerður Guðmundsdóttir, fomaður.
  • Linda Jóhannsdóttir, ritari.
  • Stefanía Baldursdóttir, gjaldkeri.
  • Bergþóra Lövdahl, meðstjórn.
  • Benedikt Vilhjálmsson, meðstjórn.

SKRIFSTOFAN

Skrifstofa ER er í Breiðholtskirkju v/ Þangbakka s. 567-4810 og er opin alla virka daga og þangað eru allir velkomnir sem vilja fá ráðleggingar eða aðstoð við öldrunarstarfið í söfnuðunum.

Framkvæmdastjóri tekur þátt í öldrunarstarfi eftir því sem óskað er og tími vinnst til og sækir einnig ráðstefnur og fundi sem að gagni koma í starfinu.  

Með blessunaróskum,

Þórey Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri.

ELDRIBORGARARÁÐ REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMA

BREIÐHOLTSKIRKJU V/ ÞANGBAKKA

109 REYKJAVÍK

                                                           Reykjavík, 8. apríl 2019.

Lagt fyrir héraðsfund Reykjavíkurprófastsdæmis eystra.

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2020

  1. Starfsmannafundir, guðsþjónustur

       og ráðstefnur……………………………………………………….              350.000.-

  • Fréttabréf og kynningarbæklingar…………………………..   150.000.-
  • Launakostnaður…………………………………………………..               7.500.000.-

Bifreiðastyrkur…………………………………………………….   220.000.-

Launatengd gjöld…………………………………………………   1.600.000.-

  • Skrifstofu- og símakostnaður………………………………….  400.000.-
  • Gerð ársreiknings og endurskoðun………………………….  200.000.-
  • Húsaleiga…………………………………………………………….              280.000.-
  • Annar kostnaður…………………………………………………..  100.000.-

Áætlaður kostnaður samtals……………………………………..   10. 800.000.-

f.h. stjórnar,

Þórey Dögg Jónsdóttir.