Aumasti hégómi, segir predikarinn, aumasti hégómi, allt er hégómi.

 

 

Námskeið verður haldið á vegum Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og Leikmannaskóla kirkjunnar með yfirskriftinni Aumasti hégómi, segir predikarinn,aumasti hégómi, allt er hégómi. (Pred 1.2) Námskeiðið er hluti af Biblíulestrarröð sem er á dagskránni þetta haustið.

Fjallað verður um þetta þekkta rit, predikaran og í tilefni 500 ára afmælis siðbótarinnar árið 2017 verður Guðfræði Marteins Lúthers og útlegging hans á predikaranum í brennidepli. Ásamt áherslum Lúthers verður fjallað um nýjustu rannsóknir og áherslur í ritskýringu ritsins.

Kennari á námskeiðinu er einn afkastamesti fræðimaður íslenskrar guðfræði  og helsti Lúthersfræðingur Íslands dr. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.  Sigurjón Árni var gestakennari við Guðfræðideildina í Kiel þarsíðasta sumarmisseri og er því hér gott tækifæri til að kynnast því sem hæst ber í guðfræði umræðunni í dag.

Námskeiðið hefst 21. september kl. 20 í Breiðholtskirkju og er á fimmtudagskvöldum til 30. nóvember.

Skráning er á netfangið skraning(hjá)kirkjan.is eða á skriftstofu Reykjavíkurprófastsdæmis eystra í síma: 567-4810.

Allir eru velkomnir.