Trú, líf og lestur Biblíulestrar í Breiðholtskirkju

Fimmtudaginn 20 sept. hefst í Breiðholtskirkju biblíulestraröð á vegum
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og Starfs- og leikmannaskóla þjóðkirkjunnar. Þetta er tíu kvölda námskeið og stendur frá kl. 20 – 22 hvert fimmtudagskvöld til 22. nóvember. Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um tilurð, efni og byggingu valdra texta úr Gamla og Nýjatestamenntinu. Um er að ræða þá ritningarlestra sem lesnir eru upp í guðsþjónustu á því tímbili sem námskeiðið stendur. Umsjón og kennslu annast dr. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur. Skráning er hjá Kristínu Arnardóttur á þjónustusviði Biskupsstofu, netfang kristin.arnardottir@kirkjan.is, sími 5284000. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.